Útgefandi hlutabréfa gerir samning við Nasdaq verðbréfamiðstöð hf. um útgáfu rafrænna hlutabréfa. Sé um að ræða áþreifanleg hlutabréf þarf að innkalla hlutabréfin samkvæmt VII. kafla reglugerðar 397/2000, um rafræna eignaskráningu verðbréfa í verðbréfamiðstöð.
Hér til hægri má finna útgáfusamning og útgáfulýsingu, en skila þarf inn frumriti til verðbréfamiðstöðvarinnar fyrir útgáfu hlutabréfanna.
Beiðni um hækkun eða lækkun hlutafjár skal senda til Nasdaq verðbréfamiðstöðvar hf. á netfangið csd.iceland@nasdaq.com, sjá viðeigandi eyðublöð hér til hægri