Sem hluti af víðtækari lagapakka Evrópusambandsins um varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka (AML/CFT) kveður reglugerð (ESB) 2024/1624 á um samræmdara regluverk fyrir skylda aðila innan Evrópusambandsins. Reglugerðin nær jafnframt til verðbréfamiðstöðva (CSD) og mun taka gildi gagnvart þeim frá og með 10. júlí 2027, í ríkjum Evrópusambandsins. Reglugerðina þarf að taka upp í viðauka EES-samningsins fyrir gildistöku á Íslandi.

Fyrir Nasdaq verðbréfamiðstöð felur þetta í sér mikilvæga viðbót við það regluverk sem gildir um starfsemi félagsins. Nasdaq verðbréfamiðstöð vinnur nú að undirbúningi innleiðingar þeirra krafna sem reglugerðin gerir ráð fyrir í starfsemi sinni í Eistlandi, Lettlandi, Litháen og á Íslandi.

Nýja regluverkið innleiðir víðtækar, áhættumiðaðar kröfur um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Þar á meðal eru kröfur um áreiðanleikakannanir vegna beinna viðskiptasambanda, áhættumat viðskiptavina, auðkenningu og sannprófun viðskiptavina og raunverulegra eigenda, sem og mat á tilgangi og eðli viðskiptasambanda. Jafnframt er gerð krafa um auknar ráðstafanir gagnvart viðskiptasamböndum sem teljast áhættumeiri, þar á meðal þegar um er að ræða pólitískt berskjaldaða einstaklinga eða lögsagnarumdæmi sem teljast áhættumeiri, auk áframhaldandi eftirlits með viðskiptasamböndum og viðeigandi viðskiptum.

Regluverkið styrkir einnig kröfur um stjórnarhætti og ábyrgð á regluvörslu á sviði AML/CFT, áhættumat á fyrirtækisvísu, innri reglur og eftirlitskerfi, tilkynningar um grunsamlega starfsemi, skjalavörslu, þjálfun starfsmanna og reglubundnar úttektir og endurskoðanir. Fyrir þau beinu viðskiptasambönd sem falla undir þessar kröfur getur innleiðing regluverksins því leitt til þess að óskað verði eftir frekari eða uppfærðum upplýsingum og gögnum, auk reglubundinna yfirferða og áframhaldandi eftirlits. Umfang og framkvæmd þessara krafna mun ráðast af ákvæðum reglugerðarinnar, tæknilegum stöðlum og leiðbeiningum sem styðja við framkvæmd hennar, sem og áhættusniði hvers einstaklingsbundins viðskiptasambands.

Innleiðing nýrra AML/CFT-krafna mun kalla á verulega vinnu og áframhaldandi fjárfestingu á starfssvæðum Nasdaq CSD. Þessar viðbótarkröfur regluverksins og sú rekstrarábyrgð sem þeim fylgir eru því meðal þeirra þátta sem teknir eru til skoðunar í tengslum við heildarendurskoðun gjaldskrár útgefenda.